04.06.2006 20:32:14 / joka

Flutt...

Er búin að skipta yfir í www.joka.bloggar.is 

 

Vona að e-rjir séu ánægðir með þann breytileika..

hittumst þar!


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 18:21:34 / joka

Enn á lífi!

Jæja.. verður maður ekki að reyna að halda þessari síðu uppi.
Það sem hefur gerst og er að gerast hjá mér er...
- Vettvangsnámið byrjað - eyði dögunum frá 8-14 með 2-3 ára stelpum! Þær eru YNDI!
- Heima að LÆRA - já nóg að gera!
- hanga á NETINU, svona inn á milli
- leita að ÍBÚÐ - það verið að selja þessa sem við erum í!!!
- Fáum samt að kaupa RISA rúmið sem við höfum fengið afnot af í vetur!
- fengum GLÆNYJA íbúð hjá BN sem verið að að byggja og verður til í júlí-ágúst
- ég lofa að halda INNFLUTNINGSPARTÝ - Eins gott að ERLA og ELLEN kíki í bæinn þá!
- spurning hvar við geymum dótið okkar í sumar???
- hef ekkert djammað síðan á árshátíð KHI
- Bakaði kókoskúlur tvisvar í dag - SEXfalda uppskrift í leikskólanum og TVÖfalda heima!
- Svo hlakka ég ógeðslega mikið til að komast NORÐUR á föstudaginn og heim til NESKAUPSTAÐAR á mánudaginn!
- .. liggja í LETI, borða páskaegg og fara í klipp&stríp!!


Segjum þetta gott í bili!

Væri gaman að sjá hverjir kíkja hingað..komment!


» 16 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 11:14:04 / joka

Eldsmiðjan er suddaleg!!

Ég og William ákváðum að skella okkur út að borða í gær í tilefni þess að hann varð 23 ára þann 14. mars. Það var búið að tala svo ótrúlega mikið Eldsmiðjuna, hvað það væru góðar pizzur þarna og öll sú vitleysa. Við ákváðum því að skella okkur þangað og vorum bjartsýn eftir að allir voru búnir að hrósa þessum stað lon og don! Neiiii en annað kom á daginn. Mér persónulega finnst þetta sóða-sudda staður. Við settumst við borð sem var allt útklínt hvítlauksolíu og einn tómatbiti sem Willi skutlaði á gólfið áður en ég sá til og hann sagði mér það ekki fyrr en eftir á. Jæja..við settumst og skoðuðum matseðilinn. Daman kom síðan og við pöntuðum okkur. Eftir smá stund kom hún með kókið okkar sem var b.t.w. goslaust! Eftir ca 20 mín komu tveir kallar og eftir 5 mín voru þeir búnir að panta sér. Í leiðinni spurðum við hvort við mættum fá ný hnífapör af því að það var harðnaður ostur á gafflinum. Ég fékk upp í kok við að sjá þetta. Ég hélt ró minni og við biðum...og biðum..og biðum..! Kallarnir fengu síðan pizzurnar sínar og stelpan spurði okkur hvort við værum ekki búin að fá okkar. Við svöruðum neitandi og hún sagðist ætla að athuga með hana! Eftir smá stund kom hún aftur og sagði okkur það að pöntunin hafði týnst. Frábært æðislegt! Við fengum hana að lokum og smakkaðist ágætlega..hef fengið MIKLU betri pizzu! Við þurftum sem sagt að bíða þarna í ca klst, glorhungruð, eftir einni fokkings pizzu. Að sjálfsögðu þurftum við ekki að borga krónu en mér er sama, ég vil frekar borga vel fyrir góðan mat, góða þjónustu, snyrtilegt umhverfi og snyrtilegt starfsfólk. Eitt er víst að við förum aldrei aftur á þennan stað!

Annað mál..vettvangsnámið að byrja..komið fiðrildi í magann

Norðurland um helgina í gott chill eftir mikla verkefnatörn.

Hlakka til sumarsins og langar í einn feitann lottóvinning þessa dagana!

Þangað til næst..  ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 13:21:29 / joka

Diskó diskó diskó diiiiskó!

Eins og alltaf er bara gott að frétta! Til að byrja með þá er ég komin með sumarvinnu og það á leikskólanum Sólvellir heima í Neskaupstað! Verð líklegast á deild með 3-4 ára börnum sem heitir því skemmtilega nafni ólátagarður! Hlakka mikið til og má ég byrja um leið og prófin eru búin. Það verður sem sagt brunað heim strax eftir það síðasta og dvalið yfir sumartímann á hótel mömmu, hvað er betra??

Síðan fékk ég þær fréttir fyrir helgi að ég yrði á leikskólanum Reykjakot í Mosfellsbæ í vettvangsnámi. Hlakka líka til þess..fæ þá loksins að kynnast því sem ég er að læra!

Á fimmtudaginn er síðan árshátíð hjá Kennaraháskóla Íslands og ég er á báðum áttum, langar og langar ekki! don't ask why! :)

Fyrir utan allt gamanið þá er brjálað að gera í skólanum..það er samt allt að koma! Það verður ljúft þegar þetta er allt saman búið! Búin að fá tvö verkefni til baka, bæði upp á 9 ;)

Ennþá er óákveðið hvert á að fara fyrir flugferðina sem við unnum...enn er Alicante efst í huga! MMMmm.. sól og HITI!

En ætla að fara að fylgjast með í tímanum..Lína langsokkur er að kenna (jáhh frekar sérstök kona) :)

Þangað til næst...


» 13 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:42:17 / joka

Algjör tilviljun!

Enn ein helgin á enda...

Hún byrjaði með skóla snemma á föstudaginn og eftir hann skutlaðist og fékk mér að borða. Síðan fórum ég og William niðrí Bónus Video að læra á nýja tölvukassakerfið sem er ekki frásögufærandi nema það að við keyptum okkur Mix og e-d þegar við vorum að fara. Willi drakk alveg slatta úr henni og ég fékk mér síðan og bara ojjj þetta er viðbjóður og fann e-d ógeðslegt bragð. Willi var alveg sammála og ég stakk uppá því að fara með þetta í EGILS og láta þau vita. Hetjan ÉG fór þá með flöskuna og fengum við kippu af gosi í staðinn, sem mér datt nú ekki í hug að við fengjum. En eftir það var haldið heim og okkur boðið í mat til Sollu.

En eins og þið lásuð í síðustu færslu þá langar mig alveg sjúúúklega e-d til útlanda! Í gærkvöldi var heppnin heldur betur með mér! Ég og William skelltum okkur á myndbandahátíð sem er hátíð allra myndbandaleiga á höfuðborgarsvæðinu og skemmtum okkur vel. Það var byrjað snemma heima hjá Sollu og drukkið heilmikið þrátt fyrir stuttan tíma. Leigubíllinn sótti okkur síðan og við héldum niðrí hús þar sem gleðin var haldin. Við fengum hver sinn miða, nema ég og Willi, við fengum bara einn saman - don't know why, ennnnn allavegana þá var happadrætti eftir matinn og voru það verðlaun sem voru upp á ársmiða í bíó. Talan 55 kom upp og þar sem á okkar borði voru tölur allt frá 51-69 þá vorum við viss um að þetta væri á okkar borði! Við öskruðum og leituðum í öllum töskum sem skildar voru eftir á borðinu... þar sem að við sátum bara 5 við borðið og hinir e-rsstaðar í reykingarstúkunni eða á klósettinu! Allavegana þá átti Egill að fá ársmiða í bíó en hann missti af því! Kæruleysi!!! Ég lét frekar illum látum þarna og mennirnir því farnir að taka eftir ljóshærðu  Ég var náttúrulega ekki alveg sátt við þetta og þeir voru alveg farnir að taka eftir litlu brjáluðu ljóskunni. En happadrættið hélt áfram og síðan voru tveir vinningar sem hljóðuðu upp á ferð með Iceland Express til e-rra af áfangastöðum þeirra....og viti menn þeir drógu upp miða númer 61!!! Ég gerði mig þá að enn meira fífli og öskraði..reyndar allir á borðinu öskrandi og mikið fjör. Ég sagði síðan við Willa - farþú upp! Hann hélt nú ekki og sagði neiiii farþú! Ég fór þá upp á svið og þeir gerðu e-d grín af mér. Mér var líka alveg sama því að auðvitað var ég með réttan miða og við William unnum semsagt ferð fyrir tvo og erum strax farin að skoða hvert okkur langar að fara. Höfum mikið pælt í að fara til Alicante en ekkert ákveðið.

Það ríkir mikil gleði hér á bæ :)

.. núna tekur lærdómurinn við!

Megiði eiga góða viku framundan og ef e-rjum vantar far norður næsta miðviku- eða fimmtudag! þá er nóg pláss með mér þar sem að ég verð ein á flegiferð í henni Yöru minni :)


» 15 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 11:05:17 / joka

Gleði, gleði, gleeeeði

úfffhh..það er alltaf verið að þrýsta á mig til að byrja að blogga again!

Ég er bara svo ferlegur bloggari og finnst þetta ekki það skemmtilegasta! I meen it!

Annars hringdi Ellen snillingur í mig í fyrradag og spurði hvort ég væri nokkuð dauð?? Hélt nú ekki svo að hún talaði um hitting hjá okkur vinkvennahópnum skemmtilega..og Erla elskan verður bara að skutla sér í borgina og láta okkur vita með fyrirvara - það er ekkert djamm án hennar - ég hlakka bara til :)

Einnig langar mig að auglýsa hér með að mamma mín og pabbi eru að verða amma og afi :)

Þvílík spenna í gangi :)

Að lokum þá langar mig alveg sjúklega til útlanda..ef e-r vill bjóða, Ma, Pa, HA?

Þetta er komið gott í bili!


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 15:55:12 / joka

Gaman aðessu!

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kissa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 47 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 11:45:59 / joka

Jólakortin klikkuðu í ár, svo að..

...elskurnar mínar..þetta er til ykkar!

Ég vil hér með óska ykkur gleðilegra Jóla og farsældar á nýju ári! Þakka allt liðið og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.

Hlakka til að hitta ykkur á nýju ári og eiga enn fleiri skemmtilegar stundir!

Annars var ég að ráfa um á netinu og skoða stjörnumerkið mitt.. ákvað að leyfa þessu að fylgja með

Vogin:
Vogir þykja kynþokkafullar, vekja oft rómantískar tilfinningar og klæða sig oft djarflega og tælandi. Áberandi í fari þeirra er hvað þær eru blátt áfram og óþvingaðar og hefur vogin oft verið kölluð merki félagslegra samskipta. Vogir eru oft dular og vilja ekki bera vandamál sín á torg. Þeim er mikið í mun að ná markmiðum sínum, hvort sem það er í samböndum, t.d. hjónabandi, eða félagslega. Vogin er mikill sáttasemjari og á auðvelt með að lægja öldur. Vogir þola illa háværar deilur og ósamlyndi af öllu tagi. Vogin mætti gjarnan tileinka sér meiri sjálfsþekkingu og ýtni en hún á til að gera öðrum hærra undir höfði en sjálfri sér.

jáhá! Þá er þetta komið...bumbukonfektpæjan kveður!

p.s...sorry vinir en ég nenni varla að svara blogginu hérna fyrir neðan! Verður allt crasy ef að ég geri það ekki???


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 13:07:34 / joka

jæja elskurnar...

Segðu mér nafnið þitt og ég segi þér allt um þig..... 

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

 

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

 

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

 

4. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig

 

5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

 

6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

 

7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

 

8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt.. You MUST


» 36 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 21:39:55 / joka

Lærilær og veikindi!

Jæja Erna mín, varstu orðin þreytt á að lesa þennan ágætis föstudag?? Skilðig ekki...föstudagarnir eru svo góðir! EEEEeennn nú er kominn sunnudagur, vika í próf, en ég er glöð!

Afhverju er ég glöð?? Núúú það er vegna þess að tengdó og amma Eva voru að senda okkur fullan dúnk af jólasmákökum plús soðið brauð og kleinur PLÚS jóóólapakka :) Já það styttist óðum í að Jólin koma..een fyrst eru það prófin! Ég er aðeins byrjuð að læra og gengur svona þokkalega! Þarf heldur betur að taka mig á í vikunni! Þvílíkt stress sem er í gangi. Við erum rétt að klára verkefnin núna og spurningarnar í innganginum að gera alla gráhærða - ég meina ritgerðaspurningarnar eru 15 og maður er 3-4 tíma að gera hverja og eina - ekki bara það heldur eru 30 stuttar spurningar! HALLÓ ER ÉG EKKI ÖRUGGLEG AÐ LÆRA LEIKSKÓLAKENNARANN?

Byrjaði núna á föstudaginn að fá hausverk..4 skipti á ævinni og var líka með kvefið sem ég er búin að þurfa að þola síðan að ég kom suður...ég er bara með aðeins meira kvef núna - eiginlega bara við það að kafna. Gott með próflestrinum...

Í dag er ég ekki búin að hugsa um annað en Jólin!! Ég hlakka svo óendanlega mikið til að komast heim þann 20 des og fara til Ólafsfjarðar 29 - Willi er búinn að fá snjósleða að láni hjá Hilmi og það er e-d sem mig hefur alltaf langað að prófa.

Næstu helgi er svo jóla-bónus-video-partý - það verður nú e-d, en maður þarf að passa sig.. já PRÓFIN! Djöfffull hlakka ég til þegar að þetta er búið!

En best að fara að fá sér meira af smákökum, horfa á TV og leggjast undir sæng! p.s. sagði ég ekki örugglega að það væru að koma próf?

 Nei, bara að spyrja... ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 13:16:34 / joka

Föstudagur

ohhhh þið vitið ekki hvað hjartað mitt að glatt. Ég og Rutlan mín vorum að skila ritgerðinni okkar í þroskasálfræði um ADHD...lovely að vera búin að koma þessum pappírum frá sér og yfir til kennaranna sem eru á góðri leið með að kæfa okkur!

Jáhh ég fór á miðvikudaginn í upptökur í það var lagið! Ég var að taka þátt...ahh nei því miður! Var áhorfandi og idol stjörnur sýndu hvað í þeim býr! Góður þáttur og svo var rokkaraþáttur síðar.. gildran og Sniglabandið voru þá að keppa og mæli ég með þeim þætti! Hann var geggjaður og fengum við þann heiður að vera bestu áhorfendur hingað til. Yeahhhh!

Þannig er nú það! En þetta er nú aldeilis ekki eina verkefnið, nei það er heilmikið eftir og ekki svo langt í BÉvítans prófin. Dammmn ég þarf heldur betur að fara að sofa á bókunum, glósunum og glærunum!

Annars er gleðidagur í dag. Síðasta tímanum er að ljúka og svo er vísindaferð í kvöld! Það verður nú e-d um ölvun í bænum því að HÍ er víst líka að fara í sína ferð í B&L.  ÖSss...

Annars er litla greyið mitt að verða batt.laust svo að ég get ekki skrifað meir í þetta sinn! Því miður!

Later


» 137 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 21:12:32 / joka

..Allir er'að gera'ða gott nema ég...allir er'að gera'ða gott!

lag sem hljómar í eyrum mér þessa stundina.... :(

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 17:48:19 / joka

Köben í fyrramálið!

Jæja, miðvikudagurinn sem ég er búin að bíða eftir er mættur...og næstum liðinn!

Vaknaði í morgun og ákvað að skrópa í fyrirlesturinn í þroskasálfræði og sækja mömmu út á flugvöll í staðinn. Við mæðgur fórum svo niður í sjoppu til Sollu, fórum í bakaríið og borðuðum. Héldum síðan í IKEA og svo í búð til að versla íslenskan mat og nammi fyrir frændfólkið í Danmörku. Núna er svo matarboð að byrja og Orri og Guðný ætla að mæta, það verður gaman að hitta þau. Plan kvöldsins er svo að pakka niður og fara snemma í háttinn! Þurfum að vakna tímalega í nótt áður en taxinn kemur um hálf 5..úlalla! Munum svo fljúga til Köben og vera þar laus við lærdóm og í notarlegheitum í 5 daga ;) Stefnan er svo tekin á Sálina á laugardaginn og þar á maður nú eftir að hitta íslendingana...oo magnað! sódóómmaaaaaaaaaaaa jééééeeee

Megiði eiga góða helgi!

Köbenfarinn kveðjur ;)


» 104 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 11:25:36 / joka

Klukkedí klukk!

Erna mín klukkaði mig, hér kemur þetta...

 

núverandi tími: 11:11
núverandi föt: Gallabuxur, hlýrabolur, hvítur bolur, hvítt vesti, nærföt og puma skór!
núverandi skap:  Hress að vanda
núverandi hár:  Ljóst með dökku ívafi (er hægt að segja þetta svona??)
núverandi pirringur: Að vera ekki búin með verkefnin í upplýsingatækni
núverandi lykt: Amor Amor
núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera:  Hlusta á fyrirlestur!
núverandi skartgripir: Úr, 6 hringir, 4 armbönd, eyrnalokkar og hálsmen, elska glingur!

núverandi áhyggja: Úff..þessi blessuðu verkefni í upplýsingatækni!!
núverandi löngun: Boooorða
núverandi ósk: Vinna í lottó, lengjunni eða e-d, bara græða peninga!
núverandi farði:  Púður og mascari!
núverandi eftirsjá: Að hafa ekki gert þessi verkefni í upplýsingatækni!!
núverandi vonbrigði: Dekkið á bílnum er e-d að klikka!
núverandi skemmtun: Ætli það sé ekki klíkan hérna og svo Emilía! Sitja hérna hjá mér í fyrirlestrinum.
núverandi ást: William Geir minn
núverandi staður:  Ísland, Reykjavík, Stakkarhlíð, Kennaraháskóli Íslands, skriða, 3 röð, 4 sæti frá hægri.
núverandi bók: Skólabækur
núverandi bíómynd:  Bíómynd, hvað er það?
núverandi íþrótt:   Ræktin í Mosó.
núverandi tónlist: Michael Buble- Home! Besta lag allra tíma!
núverandi lag á heilanum:  Hmm, í grænni lautu lagið – er að fara í leik með börnum á eftir!
núverandi blótsyrði:  Æj þegiðu!
núverandi msn manneskjur:  Engin
núverandi desktop mynd:   Ég og William í brúðkaupinu hjá Þorra og Gúu!
núverandi áætlanir fyrir kvöldið:  Ljós, læra, taka til og byrja að pakka niður fyrir Köben.
núverandi manneskja sem ég er að forðast:  hmm..engin held ég!
núverandi dót á veggnum: Er í skriðu..ekkert merkilegt!

 

 

 

Ætla að klukka: Erlu Snædísi, Elleni, Daníel Geir, Jón Gunnar og Skúla


» 119 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 21:09:59 / joka

Mánudagur..kannski bara til lukku!

Haha...ætla að vera á undan Ernu að blogga!

Vaknaði í morgun við vekjaraklukkuna á símanum og var ekki alveg á því að nenna á fætur. Heyrði bara í vindinum úti og fann skítakulda koma inn um rifuna á glugganum. En á endanum fór ég fram, fékk mér að borða og út í skóla. Við Rut raddlausa sátum bara fyrri tímann í leikskólinn og leikskólabarnið en ákváðum síðan bara að drífa okkur til Fanneyjar sem b.t.w. mætti ekki í tímann. Þegar við komum þangað, sat Erna í sófanum e-d agalega tussuleg og ég bara bíddu...varstu að vakna eða ertu veik?? Þá sagði greyið að hún væri veik, en hún hresstist nú við eftir að pantaðar voru djúpsteiktar rækjur og núðlur frá Nings! MMM þetta var geggjað stelpur og Fanney takk fyrir ekta kókið, snakkið og súkkulaðibitana! En ástæðan var nú ekki bara að hittast og borða, heldur var það að klára ritgerðina í innganginum. Strákaumræður komu nú líka upp eins og venja er þegar að við stelpurnar hittumst..finnum oft upp á e-rju skemmtilegra en að læra! Það gekk samt alveg þokkalega en ég þurfti nú að fara í miðjum klíðum að sækja Willa upp í Grafarholtið! En þetta reddaðist víst hjá þeim! Good good!

En svo er annað mál! Heppnin var sko með okkur í dag. Við Willi vorum e-d að tala um að okkur langaði svo í ljós og vorum reyndar búin að tala um það í langan tíma svo við ákváðum að hringja upp í MEGASÓL og panta okkur tíma! Willi var inneignarlaus svo að ég náði í minn síma og hringdi. Stelpa svaraði og ég byrjaði..,,heyrðu, ekki áttu 2 ljósatíma klukkan sexxxx" vinnupæjan: ,,hmmmm" svo kom bara e-r kelling í símann (allir kannast við þetta trúi ég) ,,því miður er enginn innistæða...blabla! varð nett pirruð og Willi hljóp upp til Sollu og fékk að panta 2 tíma! Brunuðum svo upp í Grafarholt og vorum að velta því fyrir okkur hvort að við ættum ekki bara að kaupa okkur kort. Hugsuðum í smá tíma og ákváðum svo bara að kaupa 10 tíma. Heyrðu var þá ekki bara e-d tilboð í gangi sem við vissum ekkert af í gangi. 10undi hver fékk e-d krem (1990), shampoo, e-d bodyshower dæmi og 5 tíma að auki! ooooog viti menn við vorum númer 10! Þið trúið því kannski ekki en þetta gladdi mig voða mikið og bara bjargaði þessum blessaða kulda-mánudegi ;)

Annars er lítið í fréttum! Eins og ég sagði þá kom Binni mjói í borgina um helgina og stóð hann sig vel á sundmótinu! Tímabætti sig í ýmsum sundum og mikil gleði! Til hamingju með það Binni minn!

Síðan er það bara í leik með börnum á morgun! Koma krakkar úr leikskólanum og verða með okkur í hóp 1bb íleikjum (mér, Rut og Eygló). Hlakka bara til!

En ætla að fara að gera e-d af viti!

Þangað til næst...knús og kram!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6